Lífeindafræðingar
Bloggidí blogg
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 6 apríl
06.04.2010 13:24:43 / Tótó

Mitt árlega blogg

Er ekki frábært ef ég skrifa 1 bloggfærslu á ári? Þá get ég þóst vera með í hringekjunni þó ég sé ekki með feisbók ;) 

Eníhú, mér finnst ömó að hafa misst af seinasta hitting hjá Freyju og sérstaklega af útlendingunum, þeim sjaldséðu, heheh. Vonandi getum við hóað nokkra saman í vorhitting einhvern tímann í náinni framtíð.




» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2009 22:56:08 / Tótó

Farsælt 2009 & hitting í febrúar?

Hæhó,
vildi bara koma því til skila að ég óska ykkur öllum farsældar á þessu herrans ári (anno domini) 2009.

Hittingur í febrúar? Anyone? :$
Cheers




» 4 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 12:21:36 / Ása

ekkert að frétta?

vá, viðurkenni fúslega að ég gleymi þessu bloggi reglulega og hef ekki kíkt inn lengi :|
Sé að Þórunn er búin að klára (dugleg stelpa) Svo er hún víst búin að eignast barn líka. Ég komst líka að því í síðasta hittingi að bæði Inger og Freyja eiga von á sér!! (fyrir ykkur sem fréttið aldrei neitt...) 
Ég er byrjuð að vinna á RLE þar sem Hrafnhildur ræður lögum og lofum og líkar mjög vel. Og svo er ég flutt í húsið mitt sem er æði.
Bless í bili xxx


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.06.2008 12:41:55 / Þórunn Sóley

Breytti um bakgrunn (obviously)

hæ hó,
tók mér það bessaleyfi að breyta um bakgrunn, það var bara ekki hægt að lesa textann á svona dökkum bakgrunni...
Farin út í sólskinið 8)

kveðja Þórunn Sóley



» 2 hafa sagt sína skoðun

11.06.2008 09:05:02 / Hrabba

ja hérna

... ehm já eins og einhverjir hafa kannski tekið eftir þá er bloggið mitt dautt og hef ég því ekki séð þetta nýja stjórnborð fyrr og ... tja er bara fegin að hafa valið svona "auðvelt" lykilorð inn á þessa síðu á sínum tíma ;)

Eníveis fann loksins þetta blogg aftur og ákvað í því tilefni að skrifa nokkrar línur um ekki neitt :D

Ekkert nýtt hér, bara vinna og vinna og svo sumarfrí í alltof stuttann tíma en frí þó og svo bara vinna :p

Jæja vona að það fari að koma barnafréttir eða aðrar fréttir hér inn ... já dí Inga fer að verja bráðum ... oh þið eruð svo duglegar :haha:


Knús



» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 15:32:42 / Þórunn Sóley

jeij

Hæ hæ,
langaði bara að deila með ykkur ánægju minni yfir að vera búin að verja mastersritgerðina mína!
Ég er svooooooooooo fegin að vera búin. Húrra húrra! :d


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 15:34:22 / Ása

vá, ótrúlegt að ég mundi lykilorðið

Smá fréttaskot af mér ;)
Við fluttum á Skagann í júní þegar við seldum íbúðina og erum þar því miður enn! Pétur og Sandra keyra daglega á milli í vinnu og leikskóla. Ég og Katrín komum líka 2-3 í viku að vinna í húsinu.  Núna erum við hjá foreldrum mínum í herbergi litlu systur minnar - soldið þröngt.  Ég er í fæðingarorlofi frá Blóðbankanum og var að klára kennsluréttindin (á reyndar eftir að skila einni skýrslu).  Veit samt ekki hvort ég nenni að kenna í fullu starfi þegar ég er búin að búa þetta lengi hjá foreldrum mínum.  Þau eru sko bæði kennarar og eru aldrei í fríi heila helgi - alltaf uppsöfnuð verkefni til að fara yfir og svoleiðis :s
Þið megið endilega koma með update svo maður geti fylgst með...

En ég var að spá í Vegamótahittinginn í tilefni af komu Jóhönnu; væruð þið til í að hafa hann um kaffileytið frekar en um kvöldið.  Ég ætlaði hvort sem er að koma í bæinn og vinna í húsinu um daginn og gæti þá bara sent Pétur í heimsókn með stelpurnar meðan ég hitti ykkur...  Við heyrumst alla vega, ég er ennþá með sama símann: 848-3860
knús, Ása


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 18:09:24 / Tótó

Kaffihúsahitting - já takk

Fleiri sammála? Þætti gaman að sjá ykkur á Kaffihúsinu í Eymundsson Austurstræti miðvikudaginn 27. febrúar næst komandi kl.20
kv. Þórunn Sóley


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 21:19:17 / Jóhanna

Eignaðist dóttur 12. febrúar

Jæja er ekki komin tími á nýja færslu hérna.  Ég hef allavega smá fréttir, við Hörður eignuðumst dóttur á þriðjudagsmorguninn 12. feb kl. 6.27.  Hún var 3900g (15 og hálf mörk) og 52 cm.  Hún hefur verið nefnd Æsa.
Fæðingin gekk vel fyrir sig en fylgjan sat föst svo ég þurfti að fá mænudeyfingu og fylgjan var sótt með handafli.  Ég missti rúman lítra af blóði svo ég get ekki reynt mikið á mig vegna svima.  Að öðru leiti höfum við það glimrandi. Stúlkan drekkur bara og sefur svo lífið er ansi ljúft.
Þið getið kíkt á myndir á http://systir.barnaland.is
Bestu kveðjur Jóhanna og fjölskylda


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 15:12:32 / Tótó

Föstudaginn 26 okt kl. 17

Hæ, stefni ykkur á Kaffitár næsta föstudag þann 26. október kl. 17.00.

amk. 2 búnir að staðfesta ;-) 

kv. Þórunn Sóley 


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 21:39:53 / ingerrós

Smá fréttir af mér

Allt of langt síðan ég hef kíkt hingað. 

Af mér er allt ágætt að frétta.  Ég er heima með Viking Atla og býst við að vera heima með honum fram á vor.  Hann varð 11 mánaða í dag.  Hann æðir um allt í göngugrindinni sinni.  Hann er þó ekki farinn að ganga sjálfur en voðalega duglegur að ganga ef hann fær 2 putta til að halda í :) Hann fer í aðgerðina líklega í febrúar, fáum að vita það betur í september eða október.

Kiddi er í fæðingarorlofi þennan mánuð og næsta þannig að það er nóg um að vera.  Við kláruðum herbergið hans Víkings Atla í gær og hann flutti yfir í það í gærkvöldi.  Honum líður ágætlega þar, ég þarf bara að venjast því að heyra ekki í honum á nóttunni.   

Þykir rosalega leiðinlegt að hafa ekki komist í gærkvöldi.  Var svo upptekin í gær að ég steingleymdi stað og stund og svo voru allt í einu komnir gestir og þá komst ég ekki neitt :s

Væri sko alveg til í að hitta ykkur bráðlega.  

Hvað segið þið um kaffi heima hjá mér 12.ágúst kl. 15?

 

Kv. Inger Rós  


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 10:55:54 / Tótó

lóan er komin og svo kemur Jóhanna

Gaman að heyra frá þér Jóhanna, ég er búin að merkja við í kalendaríinu ;-)

Gangi þér vel með nýju sjónina. 

Ég er alltaf á Keldum en mun klára verkefnið mitt núna í haust og útskrifast í febrúar'08 - finally. 

Hvað segið þið hin um að kíkja á kaffihús nú á vormánuðunum ... Kaffitár etv?

anyone?

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 21:42:19 / Jóhanna

Hittingur í júlí

Jæja þá er ég búin að bóka far, svo ég ákvað að skella hér inn færslu svo við gætum mögulega ákveðið hitting allavega haft það bakvið eyrað.  Við erum semsagt að tala um júlí, eftir 3 mánuði.  Ég verð á landinu 12. - 24. júlí en gæti hitt ykkur á frá 18. til 23. því ég verð á Ströndunum til að byrja með.  Ég er opin fyrir hverju sem er svo endilega komið með hugmyndir. 

Annars er það af mér að frétta að ég er að fara í augnaðgerð núna í byrjun maí!!  Ég fæ græddar linsur inní augun þar sem lazer er alveg útilokaður fyrir mig.  Ég fæ þessa aðgerð mér algjörlega að kostnaðarlausu  þar sem sjónin er svo slæm, Danir borga fyrir þá sem sjá verr en -9.  Augnlæknirinn sem framkvæmir aðgerðina er einn af þeim fyrstu sem byrjaði á þessari aðgerð, hann hefur gert þetta síðan 1994.   Ég er svakalega spennt/stressuð. 

Ég er bara alltaf að vinna, kann alltaf jafn vel við mig þarna á spitalanum og er komin á þá skoðun að kemían er alls ekki svo slæm.  Ef ykkur vantar vinnu eða langar að breyta til þá bráðvantar lífeindafræðinga hérna. Þið mynduð pottþétt fá vinnu.

 Er ekki annars allt gott að frétta af öllum? (Spyr sá sem ekkert veit)

 Bestu kveðjur Jóhanna Elísa

  

  


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 10:06:47 / Tótó

sykurpúði 2

já, nefndu stað og stund Dabba mín :)

» 9 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 19:52:06 / Dabba

Hvað er að frétta?

Hvað er að frétta af ykkur sykurpúðarnir mínir. Ása ég er búin að frétta af þér í vinnu á gamla staðnum mínum og í námi. Ég sjálf er byrjuð að vinna þar sem ég lofaði mér einu sinni að fara aldrei að vinna :| 

Hvað með ykkur hinar?

Eða viljiði frekar slúðra yfir kaffibolla, ég vil endilega fara að heyra í ykkur.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  19  Alls: 55818